Landlæknir telur enn hægt að grípa inn vegna United Silicon áður en áhrif á heilsu verða langvarandi
Landlæknir telur litlar líkur á að arsenmengun vegna kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík síðustu mánuði hafi langvarandi áhrif á heilsu íbúa. Núverandi mengun sé langt undir mörkum í því samhengi. Landlæknir telur mikilvægt að ráðin verði bót á málum enda mengun í viðlíka magni og undanfarið til margra ára líklegt til að valda langvarandi heilsuspillandi áhrifum.
Undanfarið hefur verið mikil umræða í samfélaginu um þau heilsufarslegu áhrif sem íbúum í nágrenni kísilverksmiðjunnar í Helguvík kunni að stafa af völdum arsenmengunar sem þar hefur mælst.
Á síðastliðnum fimm mánuðum sem verksmiðjan hefur starfað mældist styrkur arsens í andrúmslofti í nágrenni verksmiðjunnar á bilinu 6–7 ng/m3 á fyrstu tveimur mánuðum starfseminnar en umhverfismörk miðað við ársmeðaltal eru 6 ng/m3. Niðurstöður seinni þriggja mánaða tímabilsins munu liggja fyrir á næstu vikum.
Á fundi stjórnskipaðrar samstarfsnefndar um sóttvarnir þann 27. mars 2017 var rætt hvort og hversu mikil heilsufarsleg áhrif megi búast við að sjá af völdum mengunarinnar hjá íbúum í nágrenni við kísilverksmiðjuna. Samstarfsnefnd um sóttvarnir er skipuð sóttvarnarlækni, fulltrúum Umhverfisstofnunar, Matvælastofnunar og Geislavarna ríkisins en til fundarins voru einnig boðaðir yfirlæknir Vinnueftirlitsins og sérfræðingur í eiturefnafræði við Háskóla Íslands.
Niðurstaða fundarins var að þegar litið er til niðurstaðna erlendra rannsókna og leiðbeininga alþjóðlegra stofnana þá megi álykta að styrkur arsens í nágrenni kísilverksmiðjunnar í Helguvík sé langt undir þeim mörkum sem talin eru valda bráðum alvarlegum heilsuspillandi áhrifum.
Hvað mat á langtímaáhrifum varðar er sá tími sem mengunin hefur staðið stuttur og verulega undir þeim tíma sem það tekur að auka áhættuna á langtíma áhrifum í einhverju mæli. Því eru taldar mjög litlar líkur á að mengunin síðastliðna fimm mánuði muni valda alvarlegum heilsuspillandi áhrifum eins og krabbameini hjá íbúum í nágrenni verksmiðjunnar.
Ef mengunin mun hins vegar halda áfram til nokkurra ára í svipuðu eða meira magni en nú er, þá má búast við auknum líkum á heilsuspillandi áhrifum þó ekki sé hægt að segja með vissu hversu mikil sú aukna áhætta er.
Til lengri tíma litið er því mikilvægt að ráðin verði bót á menguninni þannig að íbúar þurfi ekki að búa við þá óvissu að heilsu þeirra sé ógnað.