Hvað varð um stúlkuna á myndinni?
Stundum berast manni fréttir af skelfilegum atburðum sem vekja til umhugsunar en nokkrum dögum eða vikum seinna er eins og allt sé gleymt. Það kemur aldrei nein framhaldsfrétt. Í janúar 2009 réðst ísraelski herinn á Gaza. Ljósmyndarinn Adel Hana var á staðnum og ein mynda hans vekur mig enn til umhugsunar: Hvað varð um stúlkuna á myndinni?
Lina Dardonah
Hún fetar sig um laskað hús
með bangsa í fanginu, lítil stúlka.
Í fjarlægum stjórnklefa
situr ungur karl
með krullur niður vangana
maulandi súkkulaði og snakk.
Deyi fólk þá getur það sjálfu sér um kennt.
Íbúum er alltaf ráðlagt að yfirgefa húsin.
Þeir segja mér ekkert fyrir verkum
möglaði faðir úti á stétt
en þegar árásirnar hófust
var þó enginn eftir innandyra
nema kannski bangsi með ofsalega rauð eyru.
Herveldið tortryggir ásýnd vanmáttarins
fjölbýlishús gæti verið bækistöð skæruliða
leikskólabarn gæti verið dulbúinn vígamaður.
Eftir aðgerðir dagsins hófst leit í rústum
og tólf ára stúlka, Lina Dardonah
náðist á mynd
þar sem hún stígur varfærin
yfir mulning úr hrundum veggjum:
Hún heldur á bangsa með ofsalega rauð eyru.
Herveldin ætla sér víst aldrei að drepa börn.
Hvar ert þú núna, Lina?
Þú sem fannst huggara í rústunum. Lifir þú?
Lina Dardonah
lítil stúlka
með bangsa í fanginu
með ógnvekjandi bangsa í fanginu.
————————————–