Fyrsti rabbíninn flytur til Íslands
Rabbíni mun flytja til Íslands og gegna hlutverki sínu sem slíkur í samfélagi og trúarlífi gyðinga á landinu síðar á þessu ári. Þetta kemur fram í frétt frá fréttastofu Jewish Telegraphic Agency (JTA). Rabbíninn verður sá fyrsti sem hefur aðsetur í Reykjavík.

Hjónin Avi og Mushky Feldman með dætrum sínum.
Avi Feldman heitir maðurinn, frá Brooklyn í New York. Kona hans, Mushky Feldman, er fædd í Svíþjóð, og ráðgera þau að flytja til Reykjavíkur ásamt dætrum sínum tveimur. Rabbíninn verður erindreki Chabad Lubavitch-hreyfingarinnar á Íslandi, sem er ein þekktasta hreyfing hasidískra gyðinga. Hreyfingin var stofnuð 1775.
Heitið Chabad er upprunnið í skammstöfun fyrir Chochmah, Binah og Da’at, hebresku orðin fyrir „visku, skilning og þekkingu“. Lubavitch er jiddíska heitið á þorpi í Hvíta-Rússlandi, Lyubavichi, þar sem upphafsmaður hreyfingarinnar bjó. Aðsetur hreyfingarinnar var flutt til Póllands um 1930, en til Bandaríkjanna í síðari heimsstyrjöld. Meðlimir Chabad Lubavitch-hreyfingarinnar eru taldir vera á bilinu 40-200 þúsund, en töluvert fleiri, eða allt að 8 milljón manns, eru sagðir taka þátt í helgiathöfnum hreyfingarinnar um hanukkah, sem gyðingar fagna um sama leyti og kristnir halda jól.
Í frétt JTA er ákvörðunin sett í samhengi við lagafrumvarp sem lagt var fram á Alþingi fyrir skemmstu, sem myndi banna umskurð ólögráða drengja, en umskurður er mikilvægur þáttur í hefðbundnum helgisiðum gyðinga. „Við vonumst til að auka vitund um merkingu og mikilvægi brit milah,“ sagði Feldman í viðtali við fréttastofuna, en brit milah er hebreska heitið á athöfninni þegar umskurður fer fram, að jafnaði átta dögum eftir fæðingu. „Við vonumst til að færa Íslendingum þennan skilning, einkum löggjöfum þeirra, þegar ákveða skal reglur sem við vonumst til að muni fela í sér trúarlega undanþágu.“
Feldman og kona hans eru sögð hafa heimsótt Ísland í desember og haldið þar hanukkah-hátíð innan gyðingasamfélags landsins, sem telji um 250 manns: nokkra heimamenn ásamt fólki sem flutt hefur til Íslands frá Bandaríkjunum og Ísrael. Þá segjast hjónin vonast til að koma á fót námsleiðum fyrir börn gyðinga, sýnagógu og mikvah, eða trúarlegum baðstað. Ekkert af þessu fyrirfinnist á landinu, og Reykjavík sé raunar ein af aðeins örfáum höfuðborgum í Evrópu án sýnagógu.
Að engir inniviðir séu til staðar fyrir samfélög gyðinga segir Feldman vera áskorun en einnig fela í sér ríkulegt tækifæri til að byggja upp lifandi samfélag. Þá segir hann að fleiri matvæli í landinu séu kosher en marga gruni, það er samræmist kröfum trúarinnar um meðferð matvæla, þar sem landið sé mjög háð innflutningi á vörum frá Evrópu og Bandaríkjunum. „Þar er því hægt að finna fjölda kosher-merktra matvara í venjulegri matvöruverslun,“ sagði hann við blaðamann JTA.
The Times of Israel og Hamodia hafa einnig greint frá málinu.
Ljósmyndir frá Chabad.org.
