100 ára afmæli fullveldis —eftirmáli hátíðarþinghalds
„Ekki bara móðgun við alla krakkana af erlendum uppruna … heldur alla íslensku þjóðina“
Unnsteinn Manuel kveður Vinstri-græn
Á fimmtudagskvöld birti Unnsteinn Manuel Stefánsson tónlistarmaður Facebook-færslu þar sem hann lýsir því yfir að hann muni ekki kjósa Vinstri-græn aftur. Hann nefnir afstöðu flokksins í átökum stjórnvalda við ljósmæður í þessu samhengi, en segir rúsínuna í pylsuendanum vera „að bjóða einum helsta rasista Norðurlandanna í partý á Þingvöllum og kunna ekki einu sinni að biðjast afsökunar á því“.
Unnteinn vísar hér til Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins, sem var boðið til hátíðarþinghalds á Þingvöllum, einni erlendra ráðamanna, fyrr í vikunni. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, bað Kjærsgaard afsökunar á að komu hennar hefði verið mótmælt með bréfi sem hún endurbirti á Facebook-síðu sinni sama fimmtudagskvöld.
Færsla Unnsteins fylgir hér í heild sinni:
Ég bý og er uppalinn í miðbænum. Eins og flestir í þessu hverfi hef ég nokkrum sinnum kosið VG. Í þessu hverfi er það jafn eðlilegt og fyrir Garðbæinga að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Foreldrar okkar, hipparnir, hafa kosið þetta afl í einhverri mynd, og við höfum haldið því áfram. Oftast.
Undanfarin ár talar maður frekar um að kjósa Kötu heldur en flokkinn sjálfan. Og það er dálítið lýsandi fyrir pólitíkina á Íslandi. Við kjósum gott fólk. Og stjórnmálamenn þykja misgóðir eftir hverfum. Við tölum um „Icehot 1“ í Sundhöllinni, á meðan að í Ásgarði er talað um Skatta-Kötu. En það tengist líka mynstri sem við sjáum allt um kring í samtímanum. Einstaklingar orðnir að vörumerkjum. Stjórnmálaflokkar eru ekki hátt skrifuð vörumerki alveg eins og hljómsveitir eru í útrýmingarhættu. XXX Rottweiler heita allt í einu Jói Pé og Króli rétt eins VG heitir Kata Jak. Á meðan að stjórnmálafólk keppist við að sannfæra okkur um hversu gott það sé, þá þarf það ekki að vinna vinnuna sína.
Ég held að íslenskir stjórnmálamenn hafi aldrei verið jafn aftengdir þjóðinni. Hvort sem við tölum um vilja fólksins eða kjör almennra borgara. Það er mjög alvarlegt mál. Þegar ég var lítill var mér tjáð að á Íslandi væri ekki stéttaskipting. Það er kjaftæði, hún meira að segja eykst. En á meðan virðist þingið aðallega vera spá í því hvort mér sé treystandi til þess að nefna barnið mitt alveg sjálfur. Haha.
Að lokum, talandi um það. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta. Nú hafið þið algjörlega ofboðið mér. Sérstaklega VG.
Eftir +-3 vikur eignast ég mitt fyrsta barn og fæ að heyra það í dag að þið séuð að fljúga verðandi mæðrum norður á land. Er ekki í lagi með ykkur? Ætlar þú Katrín Jakobsdóttir endanlega að rústa heilbrigðiskerfinu fyrir hönd Bjarna Ben?
Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað að bjóða einum helsta rasista Norðurlandanna í partý á Þingvöllum og kunna ekki einu sinni að biðjast afsökunar á því. Þið megið skammast ykkar margfalt. Þetta er ekki bara móðgun við alla krakkana af erlendum uppruna sem munu ekki kjósa ykkur aftur heldur móðgun við íslensku þjóðina í heild sinni.
Já krakkar mínir, svona er tilfinningin að vera af erlendum uppruna og eiga von á barni á alvöru Íslandi, ekki séð úr fílabeinsturninum við Austurvöll.